8 nóv. 2016
Í dag kl. 12:45 verður dregið í 16-liða úrslit í Maltbikar karla en þá verða níu lið úr Domino's deildinni í skálinni, fjögur úr 1. deild og þrjú úr neðri deildum.

Í næsta drætti verður svo dregið í 8-liða úrslit karla og kvenna.

Liðin sem verða í skálinni í dag eru:

🏀 Domino's deildin (9 lið)
Grindavík, Haukar, ÍR, Keflavík, KR, Tindastóll, Skallagrímur, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn.

🏀 1. deild (4 lið)
Fjölnir, FSu, Höttur og Valur.

🏀 2. deild og 3. deild (3 lið)
Haukar-b, Njarðvík-b og Sindri.
 
Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á facebook-síðu KKÍ og á twitter á @kkikarfa og undir #korfubolti og #maltbikarinn.