28 okt. 2016Þrír leikir eru á dagskránni í kvöld í Domino's deild karla og verður viðureign Stjörnunnar og Keflavíkur sýnd beint á Stöð 2 Sport kl. 20:00. Allir leikir kvöldsins verða í lifandi tölfræði á kki.is.

🏀Stjarnan-Keflavík · Beint á Stöð 2 Sport

🏀Haukar-KR kl. 19:15
🏀Þór Þ.-Snæfell kl. 19:15

Kl. 22:00 er svo komið að Körfuboltakvöldi þar sem farið verður yfir leiki vikunnar í Domino's deildum karla og kvenna auk þess sem farið verður yfir ýmis tilþrif, frammistöður leikmanna og leikirnir krufnir til mergjar.

Fylgist með umræðunni á #korfubolti og #dominos365.