21 okt. 2016Domino’s deild karla býður upp á tvo leiki í kvöld. Stöð 2 Sport sýnir beint frá leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í Ljónagryfjunni kl. 20:00. Kl. 22:00 er svo komið að Domino's Körfuboltakvöld þar sem umferðir karla og kvenna verða gerðar upp, leikirnir og helstu atriði og tilþrif krufin.

Hin viðureigning kvöldsins fer fram á Ásvöllum þegar Haukar taka á móti Þór Þorlákshöfn kl. 19:15. 

Leikir kvöldsins verða í lifandi tölfræðilýsingu á kki.is.

Kl. 19.15
🏀 Haukar-Þór Þorlákshöfn

Kl. 20:00
🏀 Njarðvík-Stjarnan · Beint á Stöð 2 Sport

#korfubolti