19 okt. 2016
Í kvöld fara fram fjórir leikir í Domino's deild kvenna og hefjast þeir allir kl. 19:15. Því miður næst ekki að sýna leik í kvöld en í staðin verður boðið upp á tvíhöðfa á laugardaginn kemur með tveimur útsendingum.
 
Af tæknilegum ástæðum sá 365 sér ekki fært að geta sent beint frá leik í Domino‘s-deild kvenna í kvöld svo vel væri hægt við að una. Þ.a.l. ákvað KKÍ og 365 að sýna tvo leiki úr Domino´s deild kvenna n.k. laugardag og hefst fyrri leikurinn kl. 14:30 með viðureign Snæfells og Stjörnunnar og svo kl. 16:30 hefst leikur Njarðvíkur og Keflavíkur.

Lifandi tölfræði er frá öllum leikjum kvöldins á KKI.is.

Leikir kvöldsins:
🏀 Grindavík-Njarðvík
🏀 Keflavík-Skallagrímur
🏀 Haukar-Snæfell
🏀 Stjarnan-Valur
 
#korfubolti