7 okt. 2016Í kvöld fara fram fjórir leikir í Domino's deild karla og verða tveir leikir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 

Nýliðar Þórs Akureyri fá Stjörnuna í heimsókn kl. 18:00 og svo kl. 18:15 eigast við suðurnesjaliðin Njarðvík og Keflavík og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá Ljónagryfjunni.
Kl. 20:00 mætast svo Haukar og hinir nýliðar ársins, Skallagrímur, í Hafnarfirði. 

KL. 20:05 er komið að seinni sjónvarpsleik kvöldsins þegar íslandsmeistarar KR taka á móti Tindastól í DHL-höllinni í Frostaskjólinu.

Allir leikir kvöldsins verða einnig í lifandi tölfræði á kki.is.