5 okt. 2016

Í kvöld er komið að því að Domino's deild kvenna tímablið 2016-2017 hefjist og verður leikin heil umferð í kvöld. Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15 og verða þeir allir í beinni tölfræðilýsingu á kki.is. 
Stöð 2 Sport mun svo sýna beint frá leik nýliða Skallagríms og íslandsmeistara Snæfells, en báðum liðum er spáð góðu gengi á tímabilinu.

Leikir kvöldsins · Domino's deild kvenna · 1. umferð
Grindavík-Haukar í Mustad höllinni í Grindavík
Keflavík-Stjarnan í TM höllinni Keflavík
Skallagrímur-Snæfell í Fjósinu Borgarnesi
Njarðvík-Valur í Ljónagryfjunni í Njarðvík

Sjáumst á vellinum!