3 okt. 2016Í gær fóru fram hinir árlegu leikir Meistarar meistaranna þar sem íslandsmeistarar mæta bikarmeisturum síðasta árs. Að þessu sinni var leikið í DHL-höllinni á heimavelli Íslandsmeistara KR og mættust Snæfell og Grindavík hjá konum og KR og Þór Þorlákshöfn hjá körlum.



Þar sem bæði Snæfell og KR eru tvöfaldir meistarar voru liðin úr úrslitum bikarsins fulltrúar þeirrar keppni í ár. Fóru leikar þannig að Snæfell vann Grindavík 70:60 hjá konunum og hjá körlunum fóru leikar 69:74 fyrir Þór Þ.

Til hamingju Snæfell og Þór Þorlákshöfn.