3 okt. 2016Í dag kl. 12:00 verður haldinn kynningarfundur fyrir Domino's deildirnar sem nú eru að hefjast. Þar verða þjálfarar allra liða og leikmenn frá hverju liði til taks.

Farið verður yfir komandi keppnistímabil, spá formanna, fyrirliða og þjálfara fyrir deildirnar verða kynntar auk spár fyrir 1. deildirnar að auki og þá gefst fjölmiðlum tækifæri á að taka myndir af leikmönnum í búning og taka viðtöl.

Hér má sjá kynningarhefti sem kynnt var á fundinum en það inniheldur leikmannalista liðanna fyrir komandi tímabili og leikjadagskránna í vetur.