
14 sep. 2016Íslenska landsliðið leikur gegn Kýpur í Laugardalshöllinin í kvöld kl. 20:15. Strákarnir þurfa á sigri að halda til að halda möguleikanum um að komast aftur á EM á lífi og ætla sér sigur.
Fyrri leiknum lauk með sigri Íslands og nú ætlar strákarnir að fylgja því eftir á heimavelli eftir þrjá útileiki í sl. leikjum.
Leikskrá fyrir leikinn er eingöngu gerð á stafrænu formi og er hægt að hlaða henni niður hérna og vista á t.d snjallsíma fyrir leikinn í kvöld.
Leikurinn verður í beinni í sjónvarpinu á RÚV og lifandi tölfræði á vef fiba.com/eurobasket2017/qualifiers.
Miðasala er á tix.is og á leikstað á meðan miðar endast. KKÍ hvetur alla að kaupa miða tímanlega til að tryggja sér sæti og forðast biðraðir á leikdegi.
Liðsskipan Íslands í kvöld:
# Nafn Staða F. ár Hæð Félagslið (land) · Landsleikir
6 Kristófer Acox F 1993 196 cm Furman University (USA) · 10
7 Sigurður Gunnar Þorsteinsson M 1988 204 cm Larrissa (GRE) · 51
8 Hlynur Bæringsson M 1982 200 cm Sundsvall Dragons (SWE) · 101
9 Jón Arnór Stefánsson B 1982 196 cm Valencia (ESP) · 86
10 Ægir Þór Steinarsson B 1991 182 cm San Pablo Inmobiliaria (ESP) · 38
12 Elvar Már Friðriksson B 1994 182 cm Barry University (USA) · 17
13 Hörður Axel Vilhjálmsson B 1988 194 cm Án félags · 55
14 Logi Gunnarsson B 1981 192 cm Njarðvik (ISL) · 128
15 Martin Hermannsson B 1994 194 cm Étoile de Charleville-Mézéres (FRA) · 42
24 Haukur Helgi Pálsson F 1992 198 cm Rouen Metropole Basket (FRA) · 47
34 Tryggvi Snær Hlinason M 1997 215 cm Þór Akureyri (ISL) · 6
88 Brynjar Þór Björnsson B 1988 192 cm KR (ISL) · 53
Axel Kárason og Ólafur Ólafsson hvíla í kvöld í leiknum gegn Kýpur.