14 sep. 2016

Sigmundur Már Herbertsson dæmir í kvöld leik Lúxemborg og Ungverjalands í G riðli undankeppni EuroBasket 2017.

Hlutskipti liðanna hefur verið ólíkt hingað til í riðlinum, Ungverjar unnið alla leikina og Lúxemborg tapað öllum en með þeim í riðli eru Bretar og Makedóníumenn. Fyrri leikur liðanna endaði með 25 stiga sigri Ungverja. Sigri Ungverjar í kvöld eru þeir svo gott sem búnir að tryggja sig inn á EuroBasket.

Meðdómarar Sigmundar í kvöld, sem er aðaldómari leiksins, eru Bojan Jovanic frá Bosníu og Hersgóvínu og Dumitru Stasiev frá Moldova. Eftirlitsmaður er Christophe Vauthier frá Frakklandi.

Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma.