12 sep. 2016Á miðvikudaginn kemur 14. september fáum við Kýpur í heimsókn og munu þeir mæta strákunum okkar í Laugardalshöllinni kl. 20:15. Sigur í þeim leik er lykillinn að því að komast á lokamót EM á næsta ári, EuroBasket 2017.

Með sigri kemst Ísland í vænlega stöðu fyrir lokaleikinn á laugardaginn gegn Belgíu sem einnig verður í Höllinni kl. 16:00.
Það er því gríðarlega mikilvægt að strákarnir fái góðan íslenzkan stuðning í stúkunni og það verði full Höll sem hvetji þá til sigurs.


Miðasala er á tix.is og hvetjum við alla stuðningsmenn til að kaupa þá tímanlega til að bæði tryggja sæti og komast hjá biðröðum á leikdegi. Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni í sjónvarpinu á RÚV.

Sjáumst í Laugardalshöllinni á miðvikudaginn!