10 sep. 2016

Ísland vann góðan sigur gegn Írlandi í vináttuleik er spilaður var í gærkvöldi hjá A-landsliði kvenna. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og var fyrri hálfleikur mjög hraður og bæði lið að hitta nokkuð vel. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 25-24 fyrir Írlandi og í hálfleik var staðan 44-38 fyrir Írlandi. Eins og sjá má var lítið um varnarleik hjá báðum liðum.

 

Íslensku stelpurnar voru ákveðnar í að gera betur í seinni hálfleik en þrátt fyrir það gekk erfiðlega að minnka muninn og staðan eftir þriðja leikhluta var 54-49. Í fjórða leikhluta voru írsku stelpurnar orðnar mjög þreyttar en íslenska liðið átti nóg af orku eftir enda spilatíminn búinn að dreifast ágætlega milli leikmanna. Íslenska liðið vann seinustu 12 mínúturnar 19-6 og unnu leikinn 60-65.

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir voru mjög góðar í dag, Sigrún með 17 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar og Gunnhildur með 16 stig, 2 fráköst og 4 stoðsendingar.

 

Einnig verður að nefna innkomu nýliðanna, Sylvíu Rún Hálfdanardóttur og Elínu Sóleyju Hrafnkelsdóttur. Þær komu með mikla orku af bekknum og skiluðu góðum mínútum. Sylvía var með 9 stig og 7 fráköst og Elín var með 5 fráköst. Virkilega flottur leikur hjá þeim stúlkum.

Því miður var ekki tekin tölfræði á leiknum en Óskar Ófeigur Jónsson tók saman helstu tölur úr leiknum.

 

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – 17 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar

Gunnhildur Gunnarsdóttir – 16 stig, 2 fráköst og 4 stoðsendingar

Ingunn Embla Kristínardóttir – 10 stig, 4 fráköst og 1 stoðsending

Sylvía Rún Hálfdanardóttir – 9 stig og 7 fráköst

Sandra Lind Þrastardóttir – 4 stig og 6 fráköst

Auður Íris Ólafsdóttir – 3 stig, 3 fráköst og 4 stoðsendingar

Ragna Margrét Brynjarsdóttir – 3 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar

Berglind Gunnarsdóttir – 2 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar

Bergþóra Tómasdóttir Holton – 1 stig og 1 frákast

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir – 5 fráköst

Jóhanna Björk Sveinsdóttir – 1 frákast

Ingibjörg Jakobsdóttir – 2 fráköst og 4 stoðsendingar