9 sep. 2016

KKÍ mun standa fyrir æfingabúðum ætluðum hávöxnum leikmönnum á aldrinum 14 til 18 ára, bæði fyrir drengi og stúlkur, sunnudaginn 18. september 2016 íþróttahúsinu á Álftanesi. Markmið með æfingabúðunum er að hávaxnir leikmenn  (drengir yfir 2 metra og stúlkur yfir 1.8 metrar) fái aukna athygli og tilsögn í undirstöðuatriðum fyrir leikmenn sem leika nær körfunni.  Sem og að ná betri yfirsýn yfir hávaxna leikmenn í hverjum árgangi fyrir sig.

Ágúst S. Björgvinsson agustb@kki.is er yfirþjálfari búðanna og mun stjórna æfingum ásamt öðrum góðum þjálfurum.