3 sep. 2016Í dag er komið að öðrum leik íslenska liðsins í undankeppni EM en leikið verður á Kýpur gegn heimamönnum. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður hann sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Íslensku leikmennirnir, þjálfarar og teymið eru í góðum gír og er tilhlökkun í hópnum fyrir leiknum. Kýpur hóf undankeppnina á leik gegn Belgum á útivelli þar sem Belgía hafði sigur 65:46 á meðan Ísland vann Sviss í sínum fyrsta leik 88:72.

Kýpverjar bjóða frítt á leikinn í dag og því má búast við góðri mætingu. Vitað er um tvær íslenskar fjölskyldur sem eru í fríi á Kýpur um þessar mundir sem munu mæta og styðja strákana okkar.

Allt um undankeppnina, úrslit, dagskrá, tölfræði og lifandi tölfræði allra leikja má sjá á heimasíðu mótsins:
www.fiba.com/eurobasket2017

Áfram Ísland!