3 sep. 2016

Pétur Hrafn Sigurðsson verður eftirlitsmaður FIBA á leik Dana og Hollendinga í dag en leikurinn er í B riðli undankeppni EuroBasket 2017.

Bæði lið léku sinn fyrsta leik á miðvikudag og töpuðu bæði, Danir úti gegn Þjóðverjum og Hollendingar heima gegn Austurríki.

Leikið er í Horsens og hefst leikurinn klukkan 17 að íslenskum tíma.

Dómarar leiksins eru þeir Aleksandar Milojevic frá Makedóníu, Manuel Mazzoni frá Ítalíu og Arturas Sukys frá Litháen.