1 sep. 2016Íslenska liðið er nú á leiðinni til Frakklands þar sem annað flug verður tekið niður til Kýpur. Kýpur mætir Íslandi í leik tvo í undankeppninni á laugardaginn kemur. 

Morgundagurinn fer í ferðalag og svo er hvíld og aðlögun næstu daga fram að leik ásamt æfingum. Í kjölfarið verður haldið til Belgíu þar sem leikið verður 7. september og svo er loka útileikurinn í keppninni þann 10. september í Sviss. 

Þá er komið að heimaleikjum gegn Kýpur þann 14. september og svo gegn Belgíu þann 17. september.