5 júl. 2016

Finnur Freyr Stefánsson, landsliðsþjálfari U20 karla, hefur valið þá 12 leikmenn sem skipa U20 ára lið karla 2016. Liðið mun taka þátt á Evrópumóti FIBA sem fram fer á Grikklandi dagana 15.-24. júlí en keppnin fer fram í borginni Chalkida.

Andstæðingar okkar drengja í riðlinum verða Hvíta-Rússland, Rússland, Eisland og Pólland og svo tekur við úrslitakeppni og leikir um sæti.

Hægt er að skoða heimasíðu mótsins hérna: fiba.com - U20

Liðið er við æfingar þessa dagana og heldur utan 13. júlí næstkomandi. Liðið er skipað eftirfarandi leikmönnum: 

U20 karla:
Breki Gylfason · Breiðablik
Brynjar Magnús Friðriksson · Stjarnan
Halldór Garðar Hermannsson · Þór Þorlákshöfn
Hjálmar Stefánsson · Haukar
Jón Axel Guðmundsson · Davidson, USA / Grindavík
Kári Jónsson · Haukar
Kristinn Pálsson · Marist University, USA / Njarðvík
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Snorri Vignisson · Breiðablik
Tryggvi Þór Hlinason · Þór Akureyri
Viðar Ágústsson · Tindastóll
Vilhjálmur Kári Jensson · KR

Þjálfari: Finnur Freyr Stefánsson
Aðstoðarþjálfari: Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfari: Bjartmar Birnir
Fararstjóri: Eyjólfur Guðlaugsson

Dómari fyrir hönd Íslands á mótinu er Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari.