30 jún. 2016

Í dag er síðasti keppnisdagurinn á NM 2016 í Finnlandi runninn upp og eru mótherjarnir heimamenn en U18 ára lið karla leikur til úrslita gegn Finnum um 1. sætið í dag kl. 12:45 að íslenskum tíma. 

Leikjadagskráin í Kisakallio, Finnlandi, fimmtudaginn 30. júní
(Allir tíma að íslenskum tíma)

kl. 10:30 · U16 drengja · Ísland gegn Finnlandi (SUSI 1)
kl. 12:45 · U18 karla · Ísland gegn Finnlandi (SUSI 1)
kl. 12:45 · U16 stúlkna · Ísland gegn Finnlandi (SUSI 3)
kl. 13:00 · U18 kvenna · Ísland gegn Finnlandi (SUSI 2)

LIFANDI TÖLFRÆÐI:
Lifandi tölfræði allra leikjanna er að finna efst á kki.is sem og hérna! (http://live.baskethotel.com/fba/)

ÚTSENDINGAR Á NETINU:
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu leikjum á SUSI 1 vellinum gegn vægu gjaldi (€8 mótið) á Fanseat.com.
Þar verða einnig upptökur af leikjunum aðgengilegar.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu leikjum á SUSI 2 vellinum beinni útsendingu á Youtube-rás Finnlands í opinni dagskrá.