28 jún. 2016

Í dag þriðjudag er komið að þriðja leikdegi af fimm á NM 2016 í Finnlandi og eru andstæðingar dagsins Svíþjóð.

Leikjadagskráin í Kisakallio, Finnlandi þriðjudaginn 28. júní
(Allir tíma að íslenskum tíma)

kl. 15:15 · U18 karla · Svíþjóð gegn Íslandi (SUSI 2)
kl. 17:15 · U16 drengja · Svíþjóð gegn Íslandi (SUSI 3)
kl. 17:15 · U16 stúlkna · Svíþjóð gegn Íslandi (SUSI 1)
kl. 17:30 · U18 kvenna · Svíþjóð gegn Íslandi (SUSI 2)

LIFANDI TÖLFRÆÐI:
Lifandi tölfræði allra leikjanna er að finna efst á kki.is sem og hérna! (http://live.baskethotel.com/fba/)

ÚTSENDINGAR Á NETINU:
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu leikjum á SUSI 1 vellinum gegn vægu gjaldi (€8 mótið) á Fanseat.com.
Þar verða einnig upptökur af leikjunum aðgengilegar.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu leikjum á SUSI 2 vellinum beinni útsendingu á Youtube-rás Finnlands í opinni dagskrá.