22 jún. 2016

Í umsókn þarf að koma fram nafn á móti, sú helgi sem óskað er eftir og fyrir hvaða aldurshóp og kyn viðkomandi mót er.

Á síðasta Körfuknattleiksþingi var samþykkt reglugerð um minniboltamót félaga. Til þess að geta haldið mót þarf félag að uppfylla reglugerð þessa. Sjá grein nr. 45 í reglugerð um körfuknattleiksmót - http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=1

Ef fleiri en tvö félög óska eftir sömu helgi mun mótanefnd úthluta helginni.

Ef félög óska eftir að halda mót aðrar helgar þá þarf að hafa samband sérstaklega og óska eftir þeim.

Umsóknir þurfa að berast fyrir kl. 09.00 þriðjudaginn 28. júní.

Lausar helgar veturinn 2016-17:

24.-25. september

1.-2. október

22.-23. október

5.-6. nóvember

3.-4. desember

10.-11. desember

17.-18. desember

7.-8. janúar

14.-15. janúar

21.-22. janúar

18.-19. febrúar

4.-5. mars

1.-2. apríl