6 jún. 2016KKÍ mun standa fyrir Afreksbúðum í ár líkt og síðastliðin sumur. Afreksbúðirnar eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands en í Afreksbúðum er það yfirþjálfari ásamt gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum.

Það eru yfirþjálfarar búðanna sem boða leikmenn en þeir hafa fylgst með þeim í vetur á fjölliðamótum með sínum félögum og jafnvel í Úrvalsbúðum á síðasta ári.

Afreksbúðirnar verða haldnar á tveim helgum og æft tvisvar hvorn dag. Fyrri helgin fer fram helgina 11.-12. júní. Seinni helgin verður helgina 3.-4. september. Báðar helgarnar verða haldnar í íþróttahúsinu á Álftanesi en tímasetningarnar fyrir fyrri helgina eru sem hér segir:

Stúlkur · æfingahelgi 1: 
Laugardagur 11. júní - kl. 09:00-11:00 og 13:00-15:00
Sunnudagur 12. júní - kl. 12:00-14:00 og 16:00-18:00

Yfirþjálfari er Árni Hilmarsson.

Drengir · æfingahelgi 1: 
Laugardagur 11. júní - kl. 11:00-13:00 og 15:00-17:00
Sunnudagur 12. júní - kl. 10:00-12:00 og 14:00-16:00

Yfirþjálfari er Ágúst S. Björgvinsson.