24 apr. 2016

Haukar og Snæfell mætast í úrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld kl. 19:15 en leikurinn fer fram á heimvelli Snæfells í Stykkishólmi. Staðan í einvíginu um íslandsmeistaratitilinn er 2-1 fyrir Hauka en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu hampar titlinum í ár.

Haukar-Snæfell · Leikur 4
· Stykkishólmur
· Kl. 19:15
· Sýndur beint á Stöð 2 Sport

Allir leikir úrslitanna verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á sínum stað frá öllum leikjum á kki.is.


Leikjaplan og úrslit

Leikur 1 laugardagur 16. apríl

Haukar 65:64 Snæfell (Staðan er Haukar 1-0 Snæfell)

Leikur 2 mánudagur 18. apríl

Snæfell 69:54 Haukar (Staðan er 1-1)

Leikur 3 fimmtudagur 21. apríl – sumardagurinn fyrsti

Haukar 83:74 Snæfell (Staðan er Haukar 2-1 Snæfell)

Leikur 4 sunnudagur 24. apríl

Kl. 19:15 · Snæfell-Haukar · Stykkishólmur

Leikur 5 miðvikdagur 27. apríl – ef þarf

Kl. 19:15 · Haukar-Snæfell · DB Schenkerhöllin