22 apr. 2016Lokaúrslit karla halda áfram í kvöld og nú er komið að leik 2 milli KR og Hauka um Íslandsmeistaratitilinn. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar titlinum í ár.
Leikur kvöldins fer fram í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst hann kl. 18:30 að þessu sinni.

Allir leikir úrslitanna verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á sínum stað frá öllum leikjum á kki.is.

Leikjaplanið: 
19. apríl kl. 19:15 KR 91:61 Haukar · DHL-höllin
22. apríl kl. 18:30 Haukar-KR · DB Schenkerhöllin
25. apríl kl. 19:15 KR-Haukar · DHL-höllin
28. apríl kl. 19:15 Haukar-KR ef þarf · DB Schenkerhöllin
30. apríl kl. 17:00 KR-Haukar ef þarf · DHL-höllin

Takið þátt í umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365
Einnig verður hægt að fylgjst með á facebook og Instagram síðum KKÍ.

Sjáumst á vellinum!