21 apr. 2016

Haukar og Snæfell leika þriðja leik sinn í úrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld kl. 19:15 en leikurinn fer fram á heimvelli Hauka í Hafnarfirði. Staðan í einvígi félaganna er 1-1 en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu hampar íslandsmeistaratitlinum í ár.

Haukar-Snæfell · Leikur 3
· DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum
· Kl. 19:15
· Sýndur beint á Stöð 2 Sport

Allir leikir úrslitanna verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á sínum stað frá öllum leikjum á kki.is.

Leikjaplan og úrslit:

Leikur 1 laugardagur 16. apríl

Haukar 65:64 Snæfell (Staðan er Haukar 1-0 Snæfell)

Leikur 2 mánudagur 18. apríl

Snæfell 69:54 Haukar (Staðan er 1-1)

Leikur 3 fimmtudagur 21. apríl – sumardagurinn fyrsti

Kl. 19:15 · Haukar-Snæfell · DB Schenkerhöllin

Leikur 4 sunnudagur 24. apríl – ef þarf

Kl. 19:15 · Snæfell-Haukar · Stykkishólmur

Leikur 5 miðvikdagur 27. apríl – ef þarf

Kl. 19:15 · Haukar-Snæfell · DB Schenkerhöllin