18 apr. 2016

Í kvöld mætast Snæfell og Haukar öðru sinni í úrslitum Domino's deildar kvenna. Leikurinn fer fram á heimavelli Snæfells í Stykkishólmi kl. 19:15 í kvöld. Staðan í einvíginu eftir fyrsta leikinn á laugardag er 1-0 fyrir Hauka en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu hampar íslandsmeistaratitlinum. 

Allir leikir úrslitanna verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á sínum stað frá öllum leikjum á kki.is.

Leikjaplan og úrslit:

Leikur 1 laugardagur 16. apríl

Haukar 65:64 Snæfell (Staðn er Haukar 1-0 Snæfell)

Leikur 2 mánudagur 18. apríl

Kl. 19:15 · Snæfell-Haukar · Stykkishólmur

Leikur 3 fimmtudagur 21. apríl – sumardagurinn fyrsti

Kl. 19:15 · Haukar-Snæfell · DB Schenkerhöllin

Leikur 4 sunnudagur 24. apríl – ef þarf

Kl. 19:15 · Snæfell-Haukar · Stykkishólmur

Leikur 5 miðvikdagur 27. apríl – ef þarf

Kl. 19:15 · Haukar-Snæfell · DB Schenkerhöllin