17 apr. 2016
Í kvöld er komið að öðrum leiknum í lokaúrslitum 1. deildar karla þegar Skallagrímur og Fjölnir eigast við í Borgarnesi. Í húfi er sæti í Domino's deild karla á næstu leiktíð en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki sigrar einvígið og fer upp um deild ásamt deildarmeisturum Þórs Akureyri.
Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Skallagrím. Leikurinn hefst kl. 19:15 á heimavelli Skallagríms í Fjósinu, Borgarnesi.
Fylgist með KKÍ á twitter @kkikarfa, instagram @kkikarfa og facebook.
#korfubolti