14 apr. 2016Í kvöld hefst úrslitaeinvígi Fjölnis og Skallagríms í 1. deild karla. Í húfi er sæti í Domino's deild karla á næstu leiktíð. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki sigrar einvígið og fer upp um deild ásamt deildarmeisturum Þórs Akureyri sem fóru beint upp í ár.

Leikurinn hefst kl. 19:15 á heimavelli Fjölnis í Dalhúsum.

Fylgist með KKÍ á twitter, instagram og facebook #korfubolti.