6 apr. 2016
Hið árlega Molduxamót fer fram laugardaginn 16. apríl í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í Síkinu.
Að þessu sinni verður boðið uppá þrjá flokka 40+, 30+ og kvennaflokk.
Allar upplýsingar og skráningar á mótið eru hjá Vali Valsyni í síma 861-9802 eða á netfanginu valurvalsson@gmail.com
Takið þessa helgi frá og mætum öll með góða skapið og keppnisandann í lagi.
Að venju verður kvöldvaka eftir mótið og eru allir sem hafa eitthvað skemmtilegt fram að færa sem lið eða einstaklingar, hvattir til þess að gera gott kvöld enn betra. Getur það verið allt frá einum brandara upp í sögur, skemmtiatriði, söng, dans eða hvað sem áhugasömum dettur í hug.