4 apr. 2016

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir nokkur mál í síðustu viku.

Mál nr. 20/2015-2016.
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Guðjón Guðrúnarson, leikmaður Stjörnunnar, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Fjölnis á Íslandsmóti - unglingaflokki karla, sem leikinn var 5. mars 2016".

Mál nr. 21/2015-2016.
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Haraldur Jóhannesson, leikmaður ÍG, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hauka  og ÍG á Íslandsmóti - 2. deild karla, sem leikinn var 8. mars 2016".

Mál nr. 22/2015-2016.
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Aðalsteinn Pétursson, leikmaður UMFG, sæta 2 leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis og UMFG  á Íslandsmóti - unglingaflokki karla, sem leikinn var 12. mars 2016".

Úrskurðir þessir tóku gildi 31. mars.