29 mar. 2016Í kvöld er komið að fyrsta leik Vals og Skallagríms í undanúrslitum 1. deildar karla. Leikurinn verður í Valshöllinni að Hlíðarenda og hefst kl. 19:30. Á morgun hefst svo hin viðureign undanúrslitanna milli Fjölnis og ÍA.

Liðin sem höfnuðu í 2.-5. sæti í deildarkeppninni í ár leika um eitt laust sæti í efstu deild að ári, Domino's deildinni, en vinna þarf 3 leiki í undanúrslitunum til að fara í úrslitin.

Allir leikir í 1. deild karla eru í lifandi tölfræði hér á kki.is.

Leikir liðanna í vetur (1-1)
Valur 86 : 82 Skallagrímur
Skallagrímur 92 : 78 Valur 

Leikjaplanið:
29. mars kl. 19:30 · Valur-Skallagrímur
1. apríl kl. 19:15 ·  Skallagrímur-Valur
4. apríl kl. 19:30 ·  Valur-Skallagrímur
7. apríl kl. 19:15 · Skallagrímur-Valur (ef þarf) 
10. apríl kl. 19:30 · Valur-Skallagrímur (ef þarf)