24 mar. 2016Úrslitakeppni karla heldur áfram í kvöld kl. 19:15 og eru tveir leikir á dagskránni. Stöð 2 Sport ætlar að sýna beint frá báðum leikjum kvöldsins. Um er að ræða þriðja leik viðureignanna en staða er jöfn í báðum einvígjunum.

Stjarnan-Njarðvík · Leikur 3 (staðan er 1-1)
Mætast Ásgarði í Garðabæ
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Haukar-Þór Þorlákshöfn · Leikur 3 (staðan er 1-1)
Mætast í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr báðum leikjunum að venju á kki.is.
Takið þátt í umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365

Sjáumst á vellinum í kvöld!