23 mar. 2016

Úrslitakeppni Domino's deildar karla heldur áfram í kvöld og nú er komið að þriðja leiknum í viðureignum KR og Grindavíkur og Keflavíkur og Tindastóls. Þau lið sem fyrr vinna þrjá leiki í sínum viðureignum fara áfram í undanúrslit en KR og Tindastóll leiða sín einvígi 2-0.
Báðir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15. Stöð 2 Sport sýnir beint frá Keflavík-Tindstól í kvöld.

Keflavík-Tindastóll · Leikur 3 (staðan er 2-0 fyrir Tindastól)
Mætast í TM höllinni Sunnubraut í Keflavík
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport

KR-Grindavík · Leikur 3 (staðan er 2-0 fyrir KR)
Mætast í DHL-höllinni í Frostaskjóli
Leikurinn verður í beinni á KRTV.is. Dagspassi á stöðina er 378 kr. ($2.99) og fyrir mánuðinn 631 kr. ($4.99)
KR-BBQ í félagsheimilinum frá kl. 18:00

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr báðum leikjunum að venju á kki.is.
Takið þátt í umræðunni á twitter undir #korfubolti

Sjáumst á vellinum í kvöld!