23 mar. 2016Í hádeginu verður úrvalsliðs Domino's deildar kvenna kunngjört og veitt verðlaun fyrir bestu frammistöðuna í deildinni á seinni hluta tímabilsins 2015-2016.

Þá verða fimm leikmenn valdir í úrvalslið umferðarinnar, dugnaðarforkurinn verðlaunaður ásamt besta þjálfaranum í seinni hlutanum sem og besti leikmaðurinn valinn úr hópi þeirra fimm sem skipa úrvalsliðið. Þá verður einnig besti dómarinn í Domino's deildum karla og kvenna verðlaunaður.

Einnig verður úrslitakeppnin kynnt til leiks en fjölmiðlar mæta og verða fulltrúar allra liðanna í úrslitunum á staðnum til að sitja fyrir svörum og á myndum. 

Verðlaunaafhendingin fer fram í Laugardalnum og hefst kl. 12:15.