21 mar. 2016Úrslitakeppni karla heldur áfram kl. 19:15 en liðin sem mætast í kvöld eru að leika sinn annan leik í 8-liða úrslitunum. Njarðvík og Þór Þ. leiða sín einvígi 1-0.

Stöð 2 Sport sýnir beint frá Þorlákshöfn, viðureign Þórs Þ. og Hauka.

Þór Þorlákshöfn-Haukar · Leikur 2 (staðan er 1-0 fyrir Þór)
Mætast Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Njarðvík-Stjarnan · Leikur 2 (staðan er 1-0 fyrir Njarðvík)
Mætast í Ljónagryfjunni, Njarðvík

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr báðum leikjunum að venju á kki.is.
Takið þátt í umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365

Sjáumst á vellinum í kvöld!