18 mar. 2016Úrslitakeppni karla heldur áfram í kvöld kl. 19:15, en í gær voru fyrstu tveir leikirnir háðir í tveim viðureignum, og í kvöld er komið að næstu tveim viðureignunum að fara af stað.

Einn leikur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en það verður viðureign Stjörnunnar og Njarðvíkur.

Stjarnan-Njarðvík · Leikur 1
Mætast Ásgarði í Garðabæ
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Haukar-Þór Þorlákshöfn · Leikur 1
Mætast í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum
Leikurinn verður í beinni á tv.haukar.is

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr báðum leikjunum að venju á kki.is.
Takið þátt í umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365

Sjáumst á vellinum í kvöld!