9 mar. 2016

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni. 

Mál nr. 18/2015-2016:
"Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Darri Freyr Atlason, þjálfari KR, sæta 1 leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik KR og Njarðvíkur í stúlknaflokki á Íslandsmóti kvenna, sem leikinn var 23. febrúar 2016".

Mál nr. 19/2015-2016:
"Með vísan til ákvæðis j. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Anthony Isaiah Gurley, leikmaður Tindastóls, sæta 1 leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls og KR í meistarflokki karla, sem leikinn var 3. mars 2016".

Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á morgun fimmtudag.