5 mar. 2016

KKÍ auglýsir eftir aðildarfélögum sem vilja taka að sér umsjón úrslit Íslandsmóts yngri flokka eða Landflutningsmótsins tímabilið 2015-2016. 

Stjórn og mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að gera breytingar á úrslitum yngri flokka. Úrslitin verða á tveimur helgum 6.-8. maí og 13.-15. maí. Verða undanúrslit og úrslit í hverjum flokki útkljáð á einni helgi eins og var áður.
Félög geta sótt um að halda báðar helgarnar eða einungis aðra þeirra.

Þau félög sem eru áhugasöm eiga að senda fyrirspurn um nánari upplýsingar á kki@kki.is en fresturinn til að skila inn umsókn er föstudagurinn 11. mars næstkomandi.

Stjórn KKÍ ákveður hvar úrslitahelgarnar verða.