22 jan. 2016FIBA Europe var að klára rétt í þessu að draga í riðla hjá yngri landsliðunum sem taka þátt í Evrópumótunum í sumar en Ísland sendir lið til leiks í B-deildum í U16 og U18 karla og kvenna og í U20 karla í ár. Hægt er að skoða alla riðlana í öllum keppnum á vef [v+]http://www.fibaeurope.com/draws/ [v-]fibaeurope.com/draws [slod-] Yngri landslið Íslands og andstæðingar i riðlakeppnunum: ------------------------------------------------ U16 stúlkna · B-deild í Oradea, Rúmeníu 5.-14. ágúst Albanía, Danmörk, Úkraína, Grikkland, Lúxemborg og Ísland U18 kvenna · B-deild í Sarajevo, Bosníu 23.-31. júlí Bosnía, Portúgal, Rúmenía, Finnland og Ísland U16 drengja · B-deild í Sofíu, Búlgarú 11.-20. ágúst Slóvakía, Georgá, Búlgaría, Tékkland, Ísland og Belgía U18 karla · B-deild í Skopje, Makdenóníu 29. júlí - 7. ágúst Danmörk, Tékkland, Holland, Eistland, Lúxemborg og Ísland U20 karla · B-deild í Halkida, Grikklandi 15.-24. júlí Rússland, Pólland, Ísland, Eistland og Hvíta-Rússland