20 jan. 2016FIBA hefur gefið út hvaða lönd halda lokamótin í undankeppni ÓL2016 í Ríó og hvaða lönd taka þátt. Hjá körlum eru 18 lið í þrem 6 liða riðlum sem munu eigast við. Löndin sem halda mótin verða Ítalía, Filipseyjar og Serbía. Sigurvegarar hvers móts fara á ÓL2016 en þau fara fra í sumar dagana 4.-10. júlí. Löndin sem keppa og verða dregin í riðlana þann 26. janúar eru Angóla, Kanada, Tékkland Frakkland, Grkkland, Íran, Ítalía, Japan, Mexikó, Nýja Sjáland, Filipseyjar, Púertó Ríkó, Senegal, Serbía og Túnis. Að auki eftir lokastöðuna á EM og heimslista verða Lettland, Króatía og Tyrkland einnig með í drættinum. Af þessum liðum þekkjum við Filipseyjar, sem við lékum við sl. sumar á æfingamóti í Eistlandi þar sem Ísland sigraði, og svo Ítalir, Serbar og Tyrkir, sem léku með okkur í riðli á EuroBasket í Berlín sem undirstrikar hversu sterkur okkar riðill var á EM. Hjá konum heldur Frakkland eitt mót þar sem 12 lið eigast við og efstu fimm löndin tryggja sér þátttökurétt á ÓL2016. Leikið verður í Nantes dagana 13.-19. júní og löndin sem taka þátt eru Argentína, Hvíta-Rússland, Kamerún, Kína, Kúba, Frakkland, Suður-Kórea, Nýja-Sjáland, Nígería, Spánn, Tyrkland og Venesúela.