13 jan. 2016Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni. Mál nr. 11/2015-2016: Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ingvar Kristinsson, leikmaður mfl. Stjörnunnar B, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Kormáks og Stjörnunnar B í Íslandsmóti 2. deildar, meistaraflokki karla, sem leikinn var þann 12. desember 2015. Mál nr. 12/2015-2016: Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jamie Stewart, leikmaður Vals, sæta 1 leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks og Vals í 1. deild meistaraflokks karla, sem leikinn var 7. janúar 2016. Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á fimmtudag.