28 des. 2015Nú milli jóla og nýárs er Davíð Tómas Tómasson í Belgíu að dæma og taka þátt í námskeiði fyrir verðandi FIBA dómara. FIBA er að breyta fyrirkomulaginu á ferlinu við að verða FIBA dómari og eru ekki lengur próf eins og verið hafa heldur þurfa menn að mæta á nokkur námskeið þar sem farið er yfir málin og dómarar dæma leiki. Aðildarlönd FIBA tilnefna svo FIBA dómara sína og fá þeir samþykki til tveggja ára í senn en FIBA mun jafnframt ákvarða hversu margar FIBA dómara hver þjóð getur átt. FIBA sendi út bréf til allra aðildalanda í nóvember þar sem þjóðum var boðið að sækja um að senda efnilega dómara á námskeið á nokkrum stöðum og fékk Davíð Tómas inni á námskeiðið í Belgíu ásamt 17 öðrum. Námskeiðið er keyrt samhliða X-Mas Basket Tournament þar sem dómararnir dæma á. KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í verkefninu.