19 des. 2015Í dag hefur KKÍ boðað foreldra til fundar í íþróttamiðstöðinni í Laugardal og verður hann haldinn á 3. hæð í fundarsal E á þriðju hæð til hægri um leið og gengið er inn í húsið. Á fundinu verða verkefni næsta árs kynnt og farið yfir ýmis praktísk atriði varðandi keppnisferðirnar, kostnað, utanumhald á liðunum og almennt um afreksstarfið á yngri stigum. Á fundinum verða formaður KKÍ, umsjónarmaður afreksmála KKÍ og formaður afreksnefndar KKÍ sem og fararstjórar íslenska hópsins á NM 2016 í Finnlandi. Á sama tíma eru öll yngri lið U15, U16 og U18 að æfa en þau æfa næstu þrjá daga, tvisvar á dag víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og suðurlandi.