16 des. 2015Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari heldur áfram að fá verkefni á erlendri grundu og í kvöld mun hann dæma leik danska liðsins Bakken Bears og Khimik frá Úkraínu í FIBA Europe Cup karla. Leikurinn er fyrsti leikur beggja liða í 32-liða úrslitum keppninnar en bæði liðin unnu alla sína leiki í riðlakeppninni. Þess má geta að þjálfari Bakken Bears er Israel Martin fyrrverandi þjálfari Tindastóls. Meðdómarar Sigmundar í leiknum eru Pólverjinn Janusz Calik og Þjóðverjinn Nebojsa Kovacevic. Eftirlitsmaður er Emin Balci frá Tyrklandi.