4 des. 2015Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eitt mál á fundi sínum í vikunni. Úrskurður nr. 7/2015-2016 Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Snorri Páll Sigurðsson, leikmaður Ármanns, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Ármanns og Þórs Akureyris á Íslandsmóti karla - 1. deild - sem leikinn var þann 27. nóvember 2015. Úrskurðurinn tók gildi á hádegi í gær fimmtudag.