25 nóv. 2015Íslenska kvennalandsliðið tapaði með 17 stiga mun á móti Slóvakíu, 72-55, í fyrsta heimaleik sínum í undankeppni EM 2017. Íslensku stelpurnar stóðu sig vel á móti liðinu sem endaði í níunda sæti á Evrópumótinu síðasta sumar. Íslenska liðið hefur þar með tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppninni en næstu leikur liðsins verða síðan á móti Portúgal (úti) og Ungverjalandi (heima) í febrúar. Íslensku stelpurnar hafa spilað flotta vörn stærsta hluta leikjanna og hafa látið Eurobasket-lið Ungverja og Slóvakíu hafa fyrir öllu í þessum fyrstu Evrópuleikjum liðsins í sex ár með vinnusemi sinni og góðri baráttu. Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest með 16 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst en Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 14 stig og tók 5 fráköst. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Sandra Lind Þrastardóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir skoruðu allar fimm stig en Gunnhildur spilað ekkert síðustu 22 mínútur leiksins vegna meiðsla. Byrjunin var erfið en eins og seinna í leiknum þá gáfust íslensku stelpurnar aldrei upp. Þær skoruðu ekki fyrstu fjórar mínútur leiksins og lentu bæði 7-0 og 12-2 undir í upphafi leiks. Slóvakíska liðið var síðan átta stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 19-11 og með sjö stiga forystu í hálfleik, 40-33. Slóvakísku stelpurnar virtust vera að stinga af þegar þær skoruðu sex fyrstu sig seinni hálfleiksins og komust þrettán stigum yfir, 46-33. Þá kom hinsvegar besti kafli íslensku stelpnanna í leiknum sem unnu næstu fimm mínútur 10-0 og minnkuðu muninn í þrjú stig þegar tæpar mínútur voru eftir af þriðja leikhlutanum. Helena Sverrisdóttir fékk tækifæri til að jafna metin með þriggja stiga skoti en það gekk ekki. Slóvakía gaf aftur í og var níu stigum yfir, 52-43, fyrir lokaleikhlutann. Íslenska liðið náði að minnka muninn niður í sjö stig, 56-49, þegar sex mínútur voru eftir en slóvakíska liðið kom muninum upp í sautján stig með því að vinna lokakafla leiksins 16-6. Frammistaða íslensku stelpnanna lofar góðu fyrir framhaldið. Þetta voru fyrstu tveir keppnisleikir liðsins á móti liðum sem voru í úrslitakeppni á síðasta EM á undan og þetta voru því stór skref fyrir íslenska liðið. Íslenska liðið hélt báðum liðum í 72 stigum og sýndi að liðið getur spilað góðan varnarleik. Um leið og sóknarleikurinn slípast betur ættu stelpurnar að gefa tekið fleiri skref í rétta átt í framhaldinu. Stig og tölfræði íslenska liðsins í leiknum: Helena Sverrisdóttir 16 stig, 10 stoðsendingar, 6 fráköst, 3 stolnir Pálína Gunnlaugsdóttir 14 stig, 5 fráköst Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 5 stig, 4 fráköst, 2 stoðsendingar Sandra Lind Þrastardóttir 5 stig Gunnhildur Gunnarsdóttir 5 stig, 5 fráköst á 13 mínútum Berglind Gunnarsdóttir 3 stig Guðbjörg Sverrisdóttir 3 stig Bryndís Guðmundsdóttir 2 stig, 3 fráköst, 3 stolnir, 2 stoðsendingar Ragna Margrét Brynjarsdóttir 2 stig, 3 fráköst Auður Ólafsdóttir og Jóhanna Björk Sveinsdóttir spiluðu báðar en Marín Laufey Davíðsdóttir kom ekkert við sögu.
10-0 sprettur íslensku stelpnanna stríddi slóvakíska liðinu en dugði ekki til