24 nóv. 2015Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tekur á móti Slóvakíu í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2017 en leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 annað kvöld. Slóvakía er án vafa sterkasta kvennalandsliðið sem hefur heimsótt Ísland til þessa en slóvakísku stelpurnar hafa verið fastagestir á Eurobasket undanfarin ár. Slóvakíska liðið endaði í 9. sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins síðasta sumar og hefur alls tekið þátt í tíu lokakeppnum Evrópumótsins síðan að Tékkóslóvakía skiptist upp í Tékkland og Slóvakíu árið 1993. Slóvakískur stelpurnar unnu 2 af 4 leikjum sínum í riðlunum á EM 2015 og urðu í 2. sæti á eftir Spáni. Liðið vann hinsvegar bara 1 af 3 leikjum í millriðlinum og sat eftir á tveggja stiga tapi á móti verðandi Evrópumeisturum Serbíu. Serbía var með jafnmörg stig og Slóvakía en hafði betri stöðu úr innbyrðisleiknum. Evrópumótið í Ungverjalandi og Rúmeníu síðasta sumar var fjórða úrslitakeppni EM í röð þar sem Slóvakía var meðal þátttökuþjóða. Slóvakía endaði í 12. sæti á EM 2013, í 13. til 16. sæti á EM 2011 og í 8. sæti á EM 2009. Besta árangrinum náði slóvakía kvennalandsliðið samt á fyrstu fjórum Evrópukeppnum síðan að Slóvakía öðlaðist sjálfstæði en Slóvakía komst í undanúrslitin í fjórum keppnum í röð frá EM 1993 til EM 1999. Slóvakía vann bronsverðlaun á fyrsta Evrópumóti sínu sem fór fram á Ítalíu 1993 en slóvakíska liðið vann þá heimastúlkur með einu stigi í leiknum um bronsið. Stærstu verðlaun Slóvakíu á EM komu á Evrópumótinu í Ungverjalandi árið 1997. Slóvakíska liðið fór alla leið í úrslitaleikinn þar sem liðið tapaði á móti Litháen. Slóvakía vann Ungverjaland með 26 stigum í undanúrslitaleiknum, 81-55. Slóvakía er aðeins þriðja Eurobasket-þjóðin sem spilar keppnisleik á Íslandi en hinar eru Holland og Sviss. Þarna er átt við kvennalandslið sem hefur tekið þátt í lokakeppni EM þegar liðið mætir til Íslands og spilar hér leik í móti. Holland spilaði hér bæði 2007 og 2009 en þá var hollenska landsliðið ekki búið að komast í úrslitakeppni EM síðan 1989. Sviss spilaði hér árið 2008 en þá hafi svissneska landsliðið ekki komist í lokakeppni EM í 52 ár eða síðan á EM 1956. Landslið Svartfjallalands spilaði hér á landi haustið 2009 en þá höfðu Svartfellingar aldrei komist á Eurobasket. Svartfjalland komst í fyrsta sinn á EM 2011 og hefur síðan verið fastagestur í lokakeppninni og alltaf meðal tíu efstu þjóða. Kvennlandslið Slóvakíu í úrslitakeppni EM: 1993 - 3. sæti 1995 - 4. sæti 1997 - 2. sæti 1999 - 4. sæti 2001 - 8. sæti 2003 - 7. sæti 2005 - Ekki með 2007 - Ekki með 2009 - 8. sæti 2011 - 13.-16. sæti 2013 - 12. sæti 2015 - 9. sæti
Sterkasta landsliðið sem hefur mætt íslensku stelpunum hér á landi