24 nóv. 2015Fimm ný númer litu dagsins ljós í fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins í undankeppni EM 2017 sem fór fram í Ungverjalandi á laugardaginn. Þær Bergþóra Holton Tómasdóttir (númer 3), Berglind Gunnarsdóttir (númer 22), Jóhanna Björk Sveinsdóttir (númer 23), Ragna Margrét Brynjarsdóttir (númer 25) og Auður Ólafsdóttir (númer 26) léku allar í númerum sem höfðu aldrei verið notuð í leik hjá A-landsliði kvenna. Hingað til höfðu allar landsliðskonur notað númer á bilinu 4 til 15 en nýjar reglur FIBA hafa opnað fyrir þann möguleika á að nota treyjunúmer frá 00 til 99. Margar landsliðskonur eru að spila í sömu númerum með sínum félagsliðum og því hefur reglan verið þannig að sú sem hefur spilað fleiri landsleiki fær að velja sér númer fyrst. Auður Ólafsdóttir spilar númer 6 hjá Haukum en Bryndís Guðmundsdóttir er númer 6 í landsliðinu og hefur spilað mun fleiri landsleiki. Auður valdi því að spila í treyju númer 26 en hún hefur bæði spilað númer 5 og 13 á þessu ári. Berglind Gunnarsdóttir spilar númer 11 hjá Snæfelli en Pálína Gunnlaugsdóttir er númer 11 í landsliðinu og hefur spilað mun fleiri landsleiki enda Berglind nýliði í þessu verkefni. Berglind spilar því í tvisar sinnum ellefu eða treyju númer 22. Ragna Margrét Brynjarsdóttir skipti yfir í treyju 25 þegar hún fór í Stjörnuna í sumar og spilar því í treyju númer 25 hjá bæði félagsliðinu og landsliðinu. Hún hefur spilað númer 6,7 og 12 með íslenska landsliðinu en fyrstu sex landsleikir hennar á árinu 2015 voru í númer 12. Bergþóra Holton Tómasdóttir spilar númer 14 hjá Val en lék númer 4 hjá bæði KR og Fjölni. Það er kannski viðeigandi að besta þriggja stiga skyttan í Domnio´s deild kvenna í fyrravetur spili í treyju númer 3. Móðir hennar Anna Björk Bjarnadóttir spilaði í númer 11 með landsliðinu og faðir hennar lék í 29 af 57 landsleikjum sínum í treyju númer 13. Jóhanna Björk Sveinsdóttir spilar númer 9 hjá Haukum en Sigrún Sjöfn Ámundadóttir er númer 9 í landsliðinu. Jóhanna Björk valdi því treyju númer 23 en hvort að það er vegna Michael Jordan, Lebron James eða David Beckham er ekki alveg á hreinu. Mestar líkur eru hinsvegar á því að Jóhanna Björk sé að heiðra kynsystur sína Mayu Moore sem er lykilleikmaður WNBA-meistara Minnesota Lynx. Þau númer á bilinu fjögur til fimmtán sem voru ekki notuð í leiknum á móti Ungverjum voru 5, 7, 12, 13 og 14. Stelpurnar spiluðu í nýjum glæsilegum Errea-búningum sem eru sérhannaðir fyrir körfuboltakonur og það er ekki að sjá annað en að nýju búningarnir falli í kramið hjá stelpunum okkar alveg eins og nýju númerin.
Fimm númer voru notuð í fyrsta sinn hjá kvennalandsliðinu