23 nóv. 2015Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina sem fer fram á miðvikudaginn þegar íslenska kvennalandsliðið mætir landsliði Slóvakíu í Laugardalshöllinni kl. 19:30. Miðaverð er 1500 kr. fyrir fullorðna og frítt fyrir 16 ára og yngri. Miðasalan er hafin á [v+]https://tix.is/is/event/2354/island---slovakia/ [v-]tix.is[slod-]. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miða fyrir leikina í eigin persónu þriðjudaginn 24. nóvember á skrifstofu KKÍ á milli kl. 12.00-14.00. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 12.00-14.00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á báða leikina sem síðan verður hægt að nálgast á leikstað. Tölvupóstinn skal senda á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ.
Miðaafhending korthafa fyrir landsleikina gegn Slóvakíu