23 nóv. 2015Ekki margar íslenskar landsliðskonur hafa gert betur í frumraun sinni í Evrópukeppni en þær Gunnhildur Gunnarsdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir. Gunnhildur Gunnarsdóttir var næststigahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta í leiknum úti í Ungverjalandi um helgina sem var fyrsti leikur íslensku stelpnanna í undankeppni EM 2017. Gunnhildur skoraði 12 stig í leiknum, sex stig í hvorum hálfleik. Hún var að spila sinn fyrsta EM-leik og komst í hóp með þeim sem hafa skorað flest stig í frumraun sinni í Evrópukeppni. Gunnhildur Gunnarsdóttir hitti úr 4 af 8 skotum sínum utan af velli og setti niður bæði vítin sín. Hún var einnig með 4 fráköst og 3 stolna bolta í leiknum. Það eru í raun bara tveir leikmenn sem hafa skorað meira en Gunnhildur í sínum fyrsta leik í Evrópukeppni. Það er þær Helena Sverrisdóttir og Birna Valgarðsdóttir. Birna er einnig sú eina sem hefur skorað fleiri þrista en Gunnhildur í frumraun sinni í Evrópukeppni. Helena Sverrisdóttir skoraði 25 stig í fyrsta EM-leiknum sínum sem var á móti Hollandi í Rotterdam 9. september 2006 en Birna Valgarðsdóttir skoraði 16 stig í þessum sama leik sem var fyrsti Evrópuleikur íslenska kvennalandsliðsins. Birna skoraði þrjár þriggja stiga körfur í þessum fyrsta leik sínum en Gunnhildur skoraði tvo þrista á móti Ungverjum á laugardaginn. Tvær aðrar hafa skorað tvær þriggja stiga körfur í fyrsta EM-leiknum en það eru þær Kristrún Sigurjónsdóttir og Svava Ósk Stefánsdóttir. Sandra Lind Þrastardóttir lék einnig sinn fyrsta leik í Evrópukeppni í Miskolc og tók í honum níu fráköst þar af sex þeirra í sókn. Tveir leikmenn hafa náð að taka fleiri fráköst í sínum fyrsta EM-leik en það eru þær Signý Hermannsdóttir (13) og Helena Sverrisdóttir (10). Flest stig í sínum fyrsta EM-leik: Helena Sverrisdóttir (Holland, 9.9.2006) 25 stig Birna Valgarðsdóttir (Holland, 9.9.2006) 16 stig Gunnhildur Gunnarsdóttir (Ungverjaland, 21.11.2015) 12 stig Signý Hermannsdóttir (Holland, 9.9.2006) 8 stig Kristrún Sigurjónsdóttir (Holland, 9.9.2006) 8 stig Svava Ósk Stefánsdóttir (Holland, 1.9.2007) 6 stig María Ben Erlingsdóttir (Holland, 9.9.2006) 2 stig Hildur Sigurðardóttir (Holland, 9.9.2006) 2 stig Guðrún Ósk Ámundadóttir (Slóvenía, 3.9.2008) 2 stig Sandra Lind Þrastardóttir (Ungverjaland, 21.11.2015) 1 stig Flest fráköst í sínum fyrsta EM-leik: Signý Hermannsdóttir (Holland, 9.9.2006) 13 fráköst Helena Sverrisdóttir (Holland, 9.9.2006) 10 fráköst Sandra Lind Þrastardóttir (Ungverjaland, 21.11.2015) 9 fráköst Kristrún Sigurjónsdóttir (Holland, 9.9.2006) 5 fráköst Pálína Gunnlaugsdóttir (Holland, 9.9.2006) 5 fráköst Gunnhildur Gunnarsdóttir (Ungverjaland, 21.11.2015) 4 fráköst María Ben Erlingsdóttir Holland 9.9.2006 4 fráköst Unnur Tara Jónsdóttir(Holland, 1.9.2007) 4 fráköst Flestar þriggja stiga körfur í sínum fyrsta EM-leik: Birna Valgarðsdóttir (Holland, 9.9.2006) 3 þristar Gunnhildur Gunnarsdóttir (Ungverjaland, 21.11.2015) 2 þristar Kristrún Sigurjónsdóttir (Holland, 9.9.2006) 2 þristar Svava Ósk Stefánsdóttir(Holland, 1.9.2007) 2 þristar