19 nóv. 2015Íslenska kvennalandsliðið er að mæta Ungverjum í undankeppni EM á mjög óvenjulegum tíma þegar saga kvennalandsliðsins er skoðuð. Íslensku stelpurnar spila sinn fyrsta leik í E-riðli undakeppni EM 2017 í Miskolc í Ungverjalandi 21. nóvember næstkomandi. Þetta verður fyrsti leikur íslenska kvennalandsliðsins í nóvembermánuði frá upphafi en eftir þessa leiki liðsins á móti Ungverjalandi og Slóvakíu í nóvember á íslenska kvennalandsliðið aðeins eftir að spila landsleik í þremur af fjórum mánuðum ársins. Íslenska kvennalandsliðið hefur, auk nóvembermánaðar, aldrei spilað A-landsleik í janúar, febrúar og mars. Eini leikurinn í október var vináttuleikur við Dani 10. október 1990 og því mun nóvembermánuður strax hoppa upp um eitt sæti á listanum þegar stelpurnar taka á móti Slóvökum í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 25. nóvember. Fyrirkomulagi undankeppni Evrópumótsins hjá konunum hefur verið breytt og hér eftir fara leikirnir fara fram í landsleikjahléum inn á tímabilinu sjálfu en ekki utan keppnistímabilsins eins og áður. Fram til þessa höfðu allir leikir íslenska kvennalandsliðsins í Evrópukeppni farið fram í ágúst (7) eða september (9). Flestir leikir kvennalandsliðsins í einum mánuði: Maí 36 Júní 32 Desember 25 Ágúst 19 Júlí 14 Apríl 12 September 9 Október 1